Aðgerð framundanBjarnþóra M Pálsdóttir
Jæja Palli ætlar að halda mömmu sinni aðeins lengur á tánum vegna spítalalegu og veikinda. Hann er haldinn krankleika sem heitir pectus excavatum og stóð til að hann færi í aðgerð vegna þess fyrir nokkrum árum. Vegna krabbameinsins var ekki hægt að framkvæma hana strax. Nú er hins vegar komið að því og er fyrirhuguð aðgerð þann 20.apríl n.k.Aðgerðin fer svona fram.Athe operation for correction starts with general anesthesia and the placement of an intravenous catheter for the management of pain after the operation. Two lateral incisions are made on either side of the chest for insertion of a curved steel bar under the sternum. A separate, small lateral incision is made to allow for a thoracoscope (small camera) for direct visualization as the bar is passed under the sternum. It is then fixed to the ribs on either side and the incisions are closed and dressed. The bar is not visible from the outside and stays in place for a minimum of two years. When it is time, the bar is removed as an outpatient procedure. Palli klárar þetta mál eins og allt annað sem á hann hefur verið lagt undanfarin ár.EftirlitBjarnþóra M Pálsdóttir
Frábær jólagjöf til okkar. Palli var í rannsóknum í morgun og allt kom vel út. Við förum bráðum að loka þessum kafla formlega og í raun er maður búinn að gera það að hluta. Mér finnst svo óralangt síðan við vorum í spítalarútínu og allt snérist um næsta lyfjaskammt og aukaverkanir. Það er margt til að vera þakklátur fyrir.Gleðileg jól öll sömul og lifið hvern dag eins og hann sé ykkar síðasti.
Slapp með skrekkinnBjarnþóra M Pálsdóttir
Jæja það sem hrjáði drenginn var eitrun vegna fæðubótaefna að öllum líkindum. Hann er búinn að vera á fullu í ræktinni og að stefna að þvi að þyngja sig með hjálp próteindrykkja og kreatins. Svo virðist sem líkaminn hafi ekki ráðið við að vinna úr efnunum og því fór sem fór.En sem betur fer voru engin merki um slæmsku í nýrum eða byrjun nýrnasjúkdóms og það erum við þakklát fyrir.
Næsta skref er því að eta á sig gat alla daga og láta duftfóður eiga sig.
Svona áfall ýfir upp gömul sár og þetta tók verulega á alla fjölskylduna en sem betur fer dvöldumst við ekki lengi við í óttanum og höldum okkar striki á ný í hversdagsleikanum.
Kveðjur og þakkir til ykkar sem fylgdust með okkur og studdu við bakið á okkur.
Enn lækkandiBjarnþóra M Pálsdóttir
Blóðprufur i morgun og kreatinin er komið niður í 120. Semsagt á góðri leið niður á ný. Palli tók því rólega um helgina og tók að sér verkefni fyrir Garðar hennar Huldu systir. Hann og Gunnar eru að fara að keyra í kringum landið með bæklinga. Semsagt hlutirnir að færast í samt horf á ný.Þetta áfall var áminning til okkar allra að taka ekki heilsuna og lífinu sem sjálfsögðum hlut.
Frábærar fréttirBjarnþóra M Pálsdóttir
Fyrstu fréttir úr sýnatökunni benda til að um einhvers konar eitrun eða nýrnabilun hafi verið að ræða og að þetta muni ganga til baka. Engar krabbapöddur á ferðinni. Við erum alsæl í dag og á leiðinni heim. Mætum á mánudag í blóðprufu og síðan á fimmtudaginn næsta á göngudeild til Viðars dr nýra.Auðvitað er nýrnabilun eða eitrun stórmál en samt ekkert mál miðað við hinar áhyggjurnar sem voru undirliggjandi.
Happy days héðan af 22 E. Home sweet home framundan.
Sýnatakan gekk velBjarnþóra M Pálsdóttir
Palli bar sig eins og hetjur gera. Mjög vel. Viðar læknir hafði meiri áhyggjur af mér og að ég myndi ekki hrynja í gólfið en mamman er nagli líka og allt gekk eins og í sögu.Hann verður rúmliggjandi í dag og fær wc leyfi til morguns eftir kvöldmat. Þá fáum við fyrstu svörin.
Fengum eitt jákvætt frá doktornum og það var að nýrað gaf vel eftir við ástunguna og það ku vera jákvætt.
Við höngum á því núna :) Smáskammtalækningar fá nýja merkingu fyrir mig þessa dagana. :) Fá fréttir í skömmtum það virkar vel.
Gunnar greyið er að vinna og Dísin mín sér um heimilið eins og hetja. Passar dýr og hús. Yndislegust sú stelpa.
Og svo fær maður sms um að gúllassúpa bíði í næsta húsi fyrir mannskapinn minn þar. Takk elskan mín.
Ástungan í dagBjarnþóra M Pálsdóttir
Blóðprufurnar komu ekki vel út í morgun. Kreatinin er 240 en ætti að vera um 80 hjá Palla. Því verður tekið sýni úr nýranu eftir hádegið. Fáum fyrstu niðurstöður í fyrramálið og lokaniðurstöður eftir helgina væntanlega.Við fórum heim í gær og grilluðum góðan mat. Síðan var brunað á spítalann aftur og legið yfir seriu 3 af Klovn. Dásamlegt efni til að gleyma stað og stund í smástund.
Most people don't know there are angels whose only job is to make sure you don't get too comfortable & fall asleep & miss your life." Brian Andreas
Einkennilegur dagurBjarnþóra M Pálsdóttir
Vorin vakin upp kl niu í morgun með þær fréttir að Palli þyrfti ekki lengur að fasta. Blóðprufan sem var tekin kl sex í morgun hefði komið svo vel út. Nú við vorum alsæl með það en ég samt var hálfpirruð yfir að fá ekki að vita meira. Við áttum að fara heim og koma á morgun til Sigrúnar í blóðprufu til að fylgjast með þessu.Ég fór að röfla eitthvað um þetta við vaktina. Það var ákveðið að taka aftur blóðprufur í hádeginu.
m kl 15 kom svo Viðar nýrnasérfræðingur og einhver deildarlæknir með honum. Í ljós kom að blóðprufan frá í morgun var alls ekkert hans prufa.
Þessi lækkun á kreatinin var frá öðrum sjúklingi og hádegisprufan sýndi enn mjög há gildi og allt stefnir í að sýnatakan verði á morgun eftir allt saman.
Við ákváðum að fara heim núna. Sofum uppfrá í kvöld og tökumst svo á við morgundaginn á morgunn.
JæjaBjarnþóra M Pálsdóttir
Blóðprufurnar komu ekki vel út áðan og því þarf Palli að fara í sýnatöku á nýra á morgun. Vitum ekkert fyrr en þær niðurstöður koma hvað er í gangi. Við verðum á spítalanum eitthvað um sinn.Því miður er Finnlandsferðin úr sögunni í bili. En eins og alltaf þegar ein dyr lokast opnast margar aðrar í staðinn.
Fáum að fara á okkar deild eftir hádegi og fá einkastofu. Okkar læknar eru líka komnir í málið. Þá líður manni betur að hafa "sitt" fólk í kringum sig.
If you want to feel rich, just count all the things you have that money can't buy."
Smá bakslagBjarnþóra M Pálsdóttir
Palli fór í aðgerð sl. fimmtudag og var lyfjabrunnurinn tekinn. Það gekk allt saman vel. En um helgina fór hann að fá verki neðarlega í mjóbak og í kviðarhol, var lystarlaus og með mikla ógleði. Verkirnir voru mjög botnlangalegir og fórum við á bráðamóttökuna í gærkveldi með það í huga. Hann var sendur í ct skan af kviðarholi og kom ekkert sérstakt í ljós. Búið að útiloka botnlangakast og nýrnasteina en þeir vita ekkert hvað er í gangi. Hann er með óeðlilegar blóðprufur og blóð og prótein í þvagi. Því erum við enn á ný lögst á barnaspítalann nema núna erum við á "vitlausri" deild eða skurðdeildinni og þekkjum því ekki hjúkkurnar eða læknana.Maður verður ansi vanafastur og vill hafa sitt team í kringum sig.
Palli á að liggja hérna allavega til morgun og er í allskonar rannsóknum.
Hann fór í ómskoðun af nýrum áðan og sást eitthvað sem ekki á að vera í nýranu. Það verður skoðað betur og fer Palli væntanlega í sýnatöku á miðvikudaginn. Fáum frekari skýringar á morgun. Það er enginn af okkar læknum við hérna núna.
Kveðjur frá Hringnum.